Kæru verðandi brúðhjón
Það skiptir máli að vera með réttu lögin í athöfninni , takið ykkur tíma í að hugsa málið,og ef einhverjar spurningar vakna varðandi lögin eða eitthvað annað sem snýr að tónlistinni hikið ekki við að hafa samband við mig símleiðis 6969-045 eða gegnum tölvupóst bjarniara@gmail.com eða bjarniara@internet.is . Ég fæ oft spurningar sem snúa að undirleikaranum , varðandi hvort að hann spili inn og útgöngumarsinn líka og svarið er játandi , hann sér um allan hljóðfæraleik í kirkjunni . Af fenginni reynslu þá set ég fram þá kröfu að að fá að ráða hver spilar með mér , því að mér er ekki sama hvernig þetta er gert . Ég tek það fram að þetta er alls ekki tæmandi listi , ykkur er velkomið að koma með tillögur af lögum , sem ég skoða með opnum hug.
Gangi ykkur vel með undirbúningin.
Kær kveðja
Bjarni Arason