30 September 2008
Bjarni Ara,Bogomil Font ,Raggi Bjarna og Millarnir á Players
Þann 4. október næstkomandi mun hin hrynkæra og ölhýra hljómsveit
Milljónamæringarnir leika fyrir dansi á svokölluðu kvennakvöldi á
Players í Kópavogi að tilefni 17 ára afmæli hljómsveitarinar.
Milljónamæringarnir hafa ekki komið fram opinberlega síðan í desember
2007.
Hljómsveitin Milljónamæringarnir, með Karl Olgeirsson á piano,
Birgi Bragason og S.G sem hrynsveit og blástursjöfrana Jóel Pálsson á
saxófón og Einar Jónsson á trompet, mun koma fram ásamt hinum
glaðbeittu og eggjandi söngspírum Bogomil Font, sem ku hafa samið
margar af perlum dægurtónlistarsögunnar en gefið eða selt sökum
vænisýki sinnar, Ragga Bjarna sem er einn helsti guðfaðir
dægurlagasöngs á íslandi og Færeyjum og Bjarna Ara sem er ekki faðir
Ragga heldur útvarpsmaðurinn geðþekki sem sér landslýð fyrir
eyrnakonfekti á öldum ljósvakans. Saman munu félagar þessir flytja sín
ástkærustu og vinsælustu lög og væntanlega framkalla hljóðbylgjur sem
án efa munu hrista upp í kvenþjóðinni og valda dömufríi um lönd og
höf, en sérlega verður gert vel við hinn betri hluta mannkynsins þetta
kvöld, því frítt verður inn fyrir konur til klukkan 23.30.
HEILL KVENNÞJÓÐINNI!
Milljónamæringarnir