Úr dómi DV: desember 2002
Plata: Er ástin þig kyssir
Ingvi Þór Kormáksson
ÞEGAR Bjarni Arason sigraði í Látúnsbarkakeppninni varð þjóðin hreint agndofa yfir þroskaðri rödd þessa 15 ára Árbæjargutta sem fór létt með að taka Egil og Elvis. Og nú 15 árum síðar er það enn röddin sem skapar manninn, röddin sem skilur Bjarna frá öðrum - þessi djúpa og kröftuga rödd sem allir þekkja og margir gæfu aðra höndina fyrir að hafa. Af ýmsum ástæðum hefur Bjarni ekki verið sá allra iðnasti í plötuútgáfunni og aðallega leyft fólki að njóta raddarinnar á söngskemmtunum. En á Trú, von og kærleika, sem hann gaf út fyrir tveimur árum, mátti vel greina að látúnsbarkinn efnilegi hafði vaxið úr grasi og röddin þroskaða og djúpa var ekki lengur bara þroskuð heldur einnig kröftug og góð. Og hér er það enn þessi margumtalaða rödd sem upp úr rís.
Er ástin þig kyssir inniheldur ellefu lög, fjögur íslensk, önnur erlend, en öll róleg og rómantísk. Vestra hefur tónlist þessi kallast "fullorðinspopp", hér heima gjarnan "bylgjupopp" eða "léttpopp" í höfuðið á samnefndum útvarpsstöðvum. Þetta kemur hvað skýrast fram í frábærum flutningi hans á besta lagi plötunnar, "Þú átt mig ein", eftir Magnús Þór Sigmundsson og Vilhjálm Vilhjálmsson, sem hinn síðarnefndi gerði ódauðlegt. Fyrir var ég algjörlega harður á því að enginn annar en Vilhjálmur gæti flutt þetta lag með sóma, svo krefjandi er það, en Bjarni afsannar þá kenningu mína rækilega hér, syngur lagið listilega vel og útsetning Þóris á því er til mikils sóma, líkt og flest annað sem hann gerir á plötunni. Ekki verður hjá því komist að geta þess að útsetningar hans eiga til að vera ofhlaðnar og fullsykraðar en þó ber að hafa hugfast að þær eru það oftar en ekki þegar "fullorðinspoppið" er annars vegar. Annars ber að hrósa öllum sem að plötunni koma fyrir einskæra fagmennsku og vitaskuld er hljóðfæraleikurinn hnökralaust, enda ber hann gæðastimpil Mezzoforte. Textar Ingibjargar Gunnarsdóttur eru fallegir og einlægir, vissulega væmnir á köflum, en alltaf viðeigandi. Síðan er ekki hægt að fjalla um plötuna án þess að geta framlags eiginkonu Bjarna, Silju Rutar Ragnarsdóttur, sem ku nýbyrjuð að syngja opinberlega. Ótrúleg staðreynd það því hún syngur í tveimur lögum með manni sínum, ágætri útgáfu af "Up Where We Belong" og "The Prayer", af öryggi söngkonu með áralanga reynslu og kemst því vart hjá því að láta meira að sér kveða í framtíðinni.
Hann leynir sér ekki metnaðurinn sem liggur að baki gerð Ef ástin þig kyssir. Það er náttúrlega engan veginn allra, þetta rólega, rómantíska og oft á tíðum dísæta ballöðupopp, en þeir sem kunna að meta það, þeir sem veikir eru fyrir rómantíkerum á borð við Bocelli, Michael Bolton, Celine Dion og Marc Anthony, ættu ekki að verða sviknir af ástarkossi Bjarna Arasonar.
