Forsíða - Hlustaðu á Bylgjuna í beinni - Hafa Samband - Karfan (0)     
Brúðkaup

Í fallegu brúðkaupi þarf að vera falleg tónlist. Hún á að undirstrika þær miklu tilfinningar sem brúðhjónin og gestir upplifa á þeim stóra degi sem brúðkaupsdagurinn er og skapa stemmningu sem gerir stundina ógleymanlega.

Svo þetta megi gerast þarf að vanda sérstaklega lagaval og ákvörðunin um það hverjir skuli flytja tónlistina er stór.

Bjarni Ara er með sérþekkingu á þessu sviði og fyrir utan það að syngja lögin og sálmana með glæsileik og tilfinningu þá getur hann veitt dýrmæta ráðgjöf um lagaval og kallað til undirleikara sem vinna á sömu nótum og hann. Trompetleikur Bjarna setur svo punktinn yfir i-ið og á frábærlega við í brúðarmarsinum sem og ýmsum lögum sem Bjarni syngur.

Á brúðkaupsdeginum þarf allt að ganga upp og vegna reynslu sinnar, kunnáttu og frábærrar söngraddar er Bjarni Arason sá maður sem getur tryggt það að tónlistin í kirkjunni og einnig í veislunni verði brúðhjónum, gestgjöfum og gestum ógleymanleg.

Gott dæmi um vel heppnað brúðkaup þar sem Bjarni Arason kom við sögu er þegar hann gekk sjálfur í hjónaband í júní 2002. Við athöfnina söng hann við undirleik félaga síns til konu sinnar. Að hjónavíglsunni lokinni söng Bjarni ásamt Silju, konu sinni, lagið "The Prayer". Þetta var í fyrsta sinn sem Silja söng "opinberlega" og hún sló samstundis í gegn. Lagið var tekið upp og varð eitt vinsælasta lagið í útvarpi um sumarið. Seinna sama ár kom út platan "Er ástin þig kyssir" og þar heyrðist annar dúett með Bjarna og Silju í laginu "Up were we belong". Í brúðkaupsveislunni tróð hljómsveit Bjarna , Milljónamæringarnir upp og tóku lagið með Ragnar Bjarnason og Bjarna sjálfan fremsta í flokki. Öllum viðstöddum er þetta brúðkaup ógleymenlegt enda var tónlistin í stóru hlutverki.

Bjarni Arason býður upp á fjölbreytta þjónustu í tengslum við tónlist í brúðkaupum:

  • Hann syngur við athöfnina, eitt laganna, einhver laganna eða öll lögin.
  • Hann útvegar organista sem getur leikið undir hjá honum og annast aðra spilamennsku.
  • Hann leikur á trompet við athöfnina auk þess að syngja.
  • Hann fær til liðs við sig gullfallega söngkonu sem syngur dúett með honum við athöfnina. Hún heitir Silja Rut og er eiginkona hans. Þau syngja saman t.d. Up were we belong og The Prayer auk fleiri laga
  • Hann kemur í brúðkaupsveisluna og skemmtir á ógleymanlegan hátt með söng og jafnvel trompetleik.
  • Hann skemmtir í veislunni einn síns liðs með undirleikinn á geisladiski.
  • Hann getur útvegað undirleikara til að skemmta með sér í veislunni.
  • Hann fær Silju Rut með sér til að skemmta í brúðkaupsveislunni.
  • Hann fær hljómsveit sína, Milljónamæringana til að leika með sér fyrir dansi í brúðkaupsveislunni.


Lýsing
Lagasafn
Brúðhjón