 |
Brúðkaup Krístrúnar og Rúnars 4.okt 2008
Sæll Bjarni. Takk kærlega fyrir kveðjuna og að gera þennan merka atburð ennþá eftirminnilegri og skemmtilegan. Við erum langt frá því að vera komin niður úr skýjunum. Gestirnir okkar töluðu endalaust um hvað þetta tókst vel til og hvað tónlistin og flutningurinn hafi gert mikið. Þú eignaðist nokkuð marga aðdáendur á þessum stutta tíma sem þetta tók.
VIð erum meira en sátt við ykkar hlut og þökkum þér sérstaklega fyrir aðstoðina við valið á lögunum.
Bestu kveðjur,
Kristrún og Rúnar.
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Sævars og Hrundar, Desember 2007.
Sæll Barni. Við hjónakornin viljum þakka þér innilega fyrir fallegan söng í kirkjunni, fullkomnaði upplifunina. Þið Gunnar organisti eruð frábært „team“ Svo skiptir þú um gír, eins og þér einum er lagið og hélst uppi þvílíku stuði í veislunni. Ungir sem aldnir sungu og dönsuðu og skemmtu sér konunglega. Trompetleikurinn var einnig flottur og gestirnir töluðu um það hvað þú ert góður skemmtikraftur. Einn með öllu ;) Þökkum kærlega fyrir okkur. Hrund og Sævar.
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Írisar og Óla í Þingvallakirkju 11.ágúst 2007
Kæri Bjarni!
Ástarþakkir fyrir dásamlegan söng í kirkjunni - hann átti tvímælalaust stóran þátt í því hversu falleg athöfnin var. Það voru allir að tala um hversu vel tókst til ;) Við erum alveg í skýjunum með þetta allt saman!
Með bestu kveðjum,
Hjónakornin Íris og Óli ;)
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Dýrleif Guðmundsdóttir Brúðkaup 07.07.07 Dýrleif Guðmundsdóttir
Þakka þér kærlega fyrir að gera brúðkaupsdaginn okkar fullkominn. Söngurinn var svo fallegur í kirkjunni, þetta verður okkur í minnum stætt. Kærar þakkir til Silju einnig, þið eruð frábært dútett og ég mæli einlægt með ykkur.
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Agnars og Valdísar í maí 2006 Sæll Bjarni Við viljum þakka þér fyrir frábæran flutning í brúðkaupi okkar á laugardaginn. Þetta stóðst allar væntingar og vel það. Innilegar þakkir fyrir okkur Kveðja Agnar og Valdís Grindavík
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Völu og Elfars í Hvalsneskirkju 15.júlí 2006 Sæll Bjarni! Þá erum við komin heim úr brúðkaupsferðinni, og vildum bara þakka þér fyrir frábæran söng í kirkjunni.Þetta var alveg meiriháttar flott og allir voða hrifnir. Bestu kveðjur Vala og Elfar
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Eddu Bjarkar Viðarsdóttur og Brynjólfs Hjartarsonar laugard. 4.sept 2004 / Garðakirkja
Sæll Bjarni. Þakka kærlega fyrir frábæran söng í kirkjunni sl. laugardag. Skilaðu sömuleiðis þakklæti til Guðrúnar Gunnars og Gunnars Gunnarssonar organista fyrir þeirra frábæra framlag. Þið áttuð öll þátt í að gera daginn mjög eftirminnilegan.
Kveðja. Brynjólfur Hjartarson
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Lilju Halldórsdóttur og Gunnars Freys Hafsteinssonar í Akraneskirkju 30 .okt 2004
Takk fyrir okkur Bjarni og Silja. Okkur langar að þakka fyrir frábæran söng í brúðkaupi okkar þann 30. október. Við vorum alsæl með þetta allt saman. Gestir okkar voru alveg heillaðir af söngnum og brúðarmarsinum sem var spilaður á trompet. Takk takk Kær kveðja Lilja og Gunni
Lilja og Gunni (05 November 2004)
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Marsibil Brák og Hannes / 26. júní 2004
Blessaður Bjarni og takk fyrir síðast .
Ég vildi þakka þér innilega fyrir sönginn í brúðkaupi okkar þann 26.06.04 , það var yndislegt að hlusta á þig , sérstaklega fannst mér lagið "Ég er að tala um þig " takast frábærlega . Það voru allir að tala um hvað þetta hafi verið fallegt hjá þér .
Takk kærlega fyrir okkur .
Marsibil og Hannes .
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Sigrúnar Heiðu og Kristjáns 26 . júlí 2003
Sæll Bjarni , takk fyrir kveðjuna
Við vorum ánægð með þitt framlag í kirkjunni og veislunni . Það var einróma álit gestanna að þú hefðir verið alveg frábær og í miklu stuði .
Takk fyrir okkur og bestu kveðjur .
Sigrún Heiða og Kristján .
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Kristínar og Inga Björns / 13 .sept 2003 í Grensáskirkju
Við Kristín viljum þakka kærlega fyrir okkur . Dagurinn í heild var frábær og allt í raun yfir okkar væntingum . Við erum himinlifandi með ykkur Gunnar organista og stóðuð þið ykkur frábærlega . Söngur , hljóðfæraleikur og þínar hugmyndir varðandi tónlistina gerðu yndislegan dag enn betri .
Við mælum hiklaust með ykkur snillingum í allar veislur .
Bestu þakkir .
Kristín og Ingi Björn
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Hauks Ragnarssonar og Maríu Jóhannsdóttur /ágúst 2003 Kærar þakkir fyrir allt síðastliðinn laugardag, þetta var stórkostlegt. Söngurinn hjá þér og Silju og undirleikur Gunnars í kirkjunni var frábær. Það var glæsilegt hjá Gunnari og Matta í veislunni og það er ekki talað um annað en hversu stórkostlegur þú hafir verið í veislunni og náð þvílíkri stemmningu alveg eins og við vildum hafa þetta. Viltu skila þakklæti til Silju hún söng alveg stórkostlega vel og einnig þakklæti til Gunnars og Matta við náðum ekki að þakka þeim fyrir áður en þeir fóru. Bara enn og aftur þakka þér kærlega fyrir ógleymanlegan dag þú varst frábær !
Kær kveðja, María og Haukur
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Gróu Höllu Hákonardóttur og Guðna Kristins Guðmundssonar / okt 2003 Eigum ekki til nógu sterkt lýsingarorð yfir ánægju okkar af flutningi ykkar :-) þetta var stórkostlegt, dagurinn var hrein snilld frá A-Z. Þurfum að vísu að kenna litlu dóttur okkar að "fíla" Bjarna Ara :-) en hún á boð frá Sr. Pálma í kórinn í Bústaðarkirkju.
Með kærri þökk Gróa og Guðni
|
|
 |
 |
 |
 |
 |
Brúðkaup Brúðkaup Theodóru S Sæmundsdóttur og Jóhanns Arnar Ólafssonar / júlí 2002 "21. júlí árið 2002 söng Bjarni ásamt Silju konu sinni við brúðkaup okkar í Seltjarnarneskirkju. Söngurinn var krafmikill, heillandi og gleðiríkur og átti mikinn þátt í því að athöfnin varð öllum viðstöddum ógleymanleg. Fagmennska Bjarna er til fyrirmyndar og hann hefur lag á að velja með sér fólk sem vinnur á sömu nótum eins og Silja gerði sem og Gunnar Gunnarsson organisti. Í veislunni okkar í Rauða Húsinu á Eyrarbakka söng Bjarni svo nokkur lög okkur og gestum okkar til ómældrar skemmtunar og gleði. Bjarni Arason er einfaldlega sérfræðingur á þessu sviði, það skín í gegn í hverri nótu"
Jóhann Örn Ólafsson og Theodóra S Sæmundsdóttir Seltjarnarnesi.
|
|
 |
 |
 |