Bjarni Arason
Árið 1988 kom út fyrsta sólóplata Bjarna "Þessi eini þarna" og stofnuð var hljómsveitin Búningarnir. Bjarni Ara og Búningarnir spiluðu í öllum helstu danshúsum á landsbyggðinni og í höfuðborginni við góðan orðstír og spiluðu m.a. á Listahátíð í Laugardalshöll 1988 ásamt Blow Monkies og The Christians.
Bjarni hefur komið víða við. Hann sigraði í söngvakeppni í Newcastle á Englandi þar sem hann söng "My Way"og svo í spilaborginni Las Vegas árið 2000. Bjarni hefur tekið þátt í undankeppni Evróvisjón, fyrst árið 1988 með lag Jakobs Frímanns Magnússonar, "Aftur og aftur" og svo árið 1992 með lagið "Karen" eftir Jóhann Helgason og Björn Björnsson sem lenti í 2.sæti. Árið 1996 hlaut Bjarni tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem besti söngvarinn. Bjarni hefur sent frá sér nokkrar sóló-plötur "Þessi eini þarna" árið 1988 "Ör-ævi" árið 1993, "Milli mín og þín" 1996, "Trú von og kærleikur" árið 2000 og "Er ástin þig kyssir" árið 2002. Nýjasta platan heitir "Svíng" sem kom út í nóv 2005 . Auk þess hefur Bjarni sungið inn á tugi annarra platna.
Bjarni gekk til liðs við hljómsveitina Milljónamæringana í febrúar árið 1997 og hefur verið söngvari þeirra síðan. Bjarni Ara og Milljónamæringarnir hafa verið ein vinsælasta ballhljómsveit landsins og hafa leikið á fjölmörgum mannfögnuðum við góðan orðstír enda er lagalistinn fjölbreyttur, fjörugur og skemmtilegur. Einnig hafa Milljónamæringarnir hljóðritað fullt af frábæru efni sem hægt er að finna á hinum ýmsu plötum. Hljómsveitina skipa: Steingrímur Guðmundsson á trommur, Jóel Pálsson á saxafón, Birgir Bragason á bassa, Einar Jónsson á trompet og Karl Olgeirsson á píanó og hljómborð. Söngvararnir Bogomil Font sem stofnaði bandið á sínum tíma, Páll Óskar, Raggi Bjarna og Stephan Hilmarz koma reglulega fram með Bjarna og syngja með Millunum.
Bjarni er einnig þekktur útvarpsmaður. Hann hóf störf sem dagskrárgerðarmaður á Aðalstöðinni árið 1991 fyrir tilstuðlan eigandans, Ólafs Laufdals. Stöðinni var breytt í Gull909 með nýjum eigendum. Gullið spilaði lög frá gullaldarárum rokksins. Bjarni starfaði fyrst við dagskrárgerð en var síðar gerður að dagskrárstjóra. Í júni árið 2000 hóf Bjarni störf við dagskrárgerð á Bylgjunni og var um ári síðar gerður að dagskrárstjóra þessarar elstu, frjálsu útvarpsstöðvar landsins og síðar að útvarpsstjóra Bylgjunnar.
Bjarni giftist Silju Rut Ragnarsdóttur söngkonu 15. júni árið 2002 og eiga þau tvær dætur, Thelmu Ósk (f. 1995) og Kamillu Rós (f. 1999). Silja syngur einmitt með Bjarna tvö lög á plötunni "Er ástin þig kyssir" sem kom út fyrir jólin 2002. Silja tók allt í einu upp á því að syngja fyrir Bjarna í þrítugsafmæli hans 13. júlí 2001 sem leiddi til þess að kappinn fór á hnén og bað hennar á staðnum. Bjarni hafði ekki hugmynd um þessa einstöku sönghæfileika hennar. Þau hjónin sungu saman í brúðkaupi sínu lagið "The Prayer" við mikinn fögnuð viðstaddra. Stjórnendur þáttarins Reykjavík síðdegis á Bylgjunni léku lagið í þættinum og sögðu söguna af bónorði og brúðkaupi. Í kjölfarið byrjaði síminn í hljóðverinu að hringja og hann stoppaði ekki, hlustendur vildu heyra lagið aftur og aftur og það varð eitt mest umbeðna óskalag sumarsins á Bylgjunni. Lagið er að finna á plötunni "Er ástin þig kyssir".
Silja hefur vakið verðskuldaða athygli með söng sínum. Hún fékk mikið lof gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína á plötunni og á eflaust eftir að láta meira að sér kveða í framtíðinni. Bjarni fékk einnig frábæra dóma hjá öllum tónlistargagnrýnendum fyrir söng sinn á plötunni sem og lagasmíðar en tvö lög eftir Bjarna eru á plötunni, "Ástin" sem Bjarni syngur ásamt Diddú og "Þú göfgar mína sál". Þetta er í fyrsta skipti sem hann gefur út eigin verk á plötu.
Bjarni hefur verið einn vinsælasti og virtasti söngvari þjóðarinnar frá því að hann sló í gegn í Hveragerði. Hann hefur sungið inn á fjölda hljómplatna og tekið þátt í fjölmörgum söngsýningum á Broadway og í Hollywood.
Bjarni er eftirsóttur söngvari við ýmis hátíðleg tækifæri og syngur á ári hverju í fjölda brúðkaupa auk þess sem hann hefur sungið við fjölmargar útfarir á ferli sínum. Bjarna er mikið kappsmál að undirbúa sig vel áður en hann kemur fram við hvaða tækifæri sem er og hefur fengið mikið lof og virðingu fyrir.